Vélhjólamót á Kirkjubæjarklaustri gekk vel

Þetta eru frábærar mótorhjóla fríkur.

Smá mótorkross frá Hornafirði.


mbl.is Vélhjólamót á Kirkjubæjarklaustri gekk vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krían gerir sig klára í varp.

Krían er minn uppáhalds fugl þessir ástasleykir hennar eru frábærir.

Skoða myndband


Pamela á villta syni

Hin brjóstgóða Pamela Anderson hefur viðurkennt að strákarnir hennar tveir séu villtir. Hún á tvo syni, Brandon, tíu ára, og Dylan, níu ára, með fyrrverandi eiginmanni, sínum rokkaranum Tommy Lee. Hún segir þá vera nokkuð erfiða en þeir hafi svo sem aldrei átt möguleika á að verða góðir strákar vegna foreldra sinna.

Ég held að hún sé mjög normal móðir þegar upp er staðið.

Findið að lesa sumar greynar um Pamelu þar sem sumir halda að þeir séu betri en hún LOL.


mbl.is Pamela á villta syni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppreisnarmenn í Kongó hóta að drepa sjaldgæfar górillur

Dýr eru stundum meyra virði en menn samber Hvali.
mbl.is Uppreisnarmenn í Kongó hóta að drepa sjaldgæfar górillur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur: Unnið að samræmingu þess helsta og besta úr stefnu flokkanna

Össur Skarphéðinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir stjórnarmyndunarviðræður forsvarsmanna Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins nú snúast um það með hvaða hætti hægt sé að sameina það helsta og besta úr stefnu þessara tveggja flokka í þessum kosningum og hvernig hægt sé að greiða úr þeim vandamálum sem upp komi við samræmingu þeirra.

Þetta verður skrítin og Shocking stjórn. Sennilega verður hún svo langt til HÆGRI að það hálfa væri nóg.

Björn Emil


mbl.is Össur: Unnið að samræmingu þess helsta og besta úr stefnu flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rukkað fyrir ógild atkvæði í Eurovision

Neytendasamtökin segja, að svo virðist sem hægt sé að greiða atkvæði í símakosningu Eurovision hvenær sem er og séu 100 krónur gjaldfærðar á símreikning viðkomandi þrátt fyrir að atkvæðið sé ógilt og það sé greitt utan tilskilins tímafrests. Segjast Neytendasamtökin munu óska eftir upplýsingum um fjölda ógildra atkvæða sem verða gjaldfærð.

Þetta hlítur að vera grín annað væri glæpur og rán. Sem er nóg komið af::Alien

Björn Emil


mbl.is Rukkað fyrir ógild atkvæði í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsið fauk um koll

Fjögurra hæða hús í Surat á Vestur-Indlandi hrundi í gær. Það hafði tekið að halla ískyggilega kvöldið áður. Búið var að rýma húsið þegar það féll á hliðina og því urðu engin slys á mönnum. Talið er að stóru auglýsingaskiltin á þaki hins 35 ára gamla húss hafi tekið svo mikinn vind að það hafi veikt undirstöður hússins.

Mistök hjá Verkfræðingum eða kvað


mbl.is Húsið fauk um koll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árangur áfram ekkert stopp núna

 

Kjósum Framsókn 

Trúlega verður það dómur sögunnar að á fyrra helmingi tuttugustu aldarinnar, hafi tvinnast saman einhverjir þýðingarmestu örlagaþræðir í sögu íslensku þjóðarinnar.

Á þessum tíma verður Ísland sjálfstætt ríki undir Danakonungi (1918) og síðan fullvalda lýðveldi (1944), eftir að hafa lotið erlendum yfirráðum í margar aldir.

Tuttugasta öldin hefur líka gefið íslensku þjóðinni slíka velmegun, að hún fram til þessa hefur verið í hópi þeirra þjóða þar sem lífskjör eru hvað best. Það er því ekki of sagt að algjör bylting hafi orðið í lifnaðarháttum Íslendinga á þessari öld.

Ekki komu þessar breytingar af sjálfu sér. Frelsið kostaði baráttu þótt hún væri ei með vopnum háð og það var þessi barátta fyrir frelsinu sem reyndist þjóðinni mikill orkugjafi enda vöktu sigrarnir í sjálfstæðismálunum aukna trú á framtíðina.

Þjóðin hafði dug til þess að færa sér í nyt hinar miklu framfarir sem áttu sér stað í veröldinni, ekki síst eftir lok síðari heimsstyrjaldar. Ekki var hikað við að takast á fangbrögðum við miklar framkvæmdir og stórar athafnir.

Í baráttunni fyrir stjórnarfarslegu og efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar var það mikil gæfa að eiga "aldamótamennina" með sínar björtu draumsýnir og óbilandi trú á landið sitt. Þá var það ekki síður gæfa þjóðarinnar að hún eignaðist dugmikla stjórnmálamenn, sem reyndu með störfum sínum að tryggja það að draumar aldamótamannanna yrðu að veruleika.

En fleira kom hér til sem skipti sköpum. Samtök fólksins höfðu komið til sögunnar og áttu eftir að láta að sér kveða í ýmsum myndum. Í hópi þessara samtaka var samvinnuhreyfingin sem festi rætur í Suður-Þingeyjarsýslu með stofnun fyrsta kaupfélagsins árið 1882. Þá urðu ungmennafélögin þýðingarmikil samtök ekki síst á fyrstu áratugum aldarinnar.

"Aldamótamennirnir" voru þar í forystusveit en þeir höfðu einmitt næman skilning á því að samvinnufélögin og ungmennafélögin voru tveir hornsteinar í uppbyggingu frelsis og framfara. Ungmennafélögin lögðu áherslu á þjóðrækni og þjóðfrelsi. Samvinnufélögin voru hins vegar sameinaða aflið til að bæta efnahagslega afkomu heimilanna, gefa aukna trú á framtíðina og stuðla að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar.

Hvor tveggja lögðu þessi samtök áherslu á manngildið sem skipa skyldi hærri sess en óheft peningahyggja. Samvinnuhreyfingin byggðist á frjálsum samtökum fjölda einstaklinga á grundvelli lýðræðis. Þannig gat fólkið sjálft með samtakamætti sínum skapað afl framfara sem varð þýðingarmikill þáttur í efnahagslífi þjóðarinnar.

Það fór ekki á milli mála að margar af hugsjónum "aldamótamannanna" urðu að veruleika í tímans rás. Dugmiklir og framsýnir stjórnmálamenn unnu drengilega að því að láta framtíðardraumana rætast. Þá lyftu samtök fólksins í landinu grettistökum á ýmsum sviðum. Þar í flokki voru samvinnufélögin afkastamest.

Gamalt orðtæki segir: "Veldur hver á heldur". Þetta á við stjórnmálin, rekstur fyrirtækja, félagasamtök, já reyndar flestar athafnir manna. Það var gæfa samvinnuhreyfingarinnar að eiga dugmikla frumherja og síðar farsæla forvígismenn. Í samvinnuhreyfingunni var það grundvallaratriði að ákveðnar hugsjónir um samvinnu og samtakamátt gætu notið sín. Meðal annars þess vegna var það svo þýðingarmikið að til væru forvígismenn sem gætu túlkað þessar hugsjónir og sameinað fólk undir merki þeirra.

Einn af forvígismönnum í samvinnuhreyfingunni frá byrjun fjórða áratugs aldarinnar til seinni hluta þess áttunda var Eysteinn Jónsson. Hann fæddist á Djúpavogi 1906 og ólst þar upp í foreldrahúsum. Þegar aldur leyfði stundaði hann þar vinnu bæði til sjós og lands með heimanámi hjá föður sínum séra Jóni Finnssyni.

Hann lauk prófi í Samvinnuskólanum hjá Jónasi Jónssyni 1927. Þegar hér er komið sögu hefði Eysteinn trúlega verið reiðubúinn að hefja störf innan samvinnuhreyfingarinnar, ef Jónas skólastjóri, sem þá var mesti ráðamaður innan Framsóknarflokksins, hefði ekki ætlað honum annað hlutverk.

Þannig voru mál með vexti, að Jónas lagði sig fram um að fá unga menn til starfa fyrir Framsóknarflokkinn. Ljóst er að í Eysteini sá hann efnilegan stjórnmálamann, enda kvaddi Jónas hann til starfa sem aðstoðarmann sinn, þegar hann varð ráðherra 1927 í ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar.

Eysteinn hafði nú kastað teningnum. Stjórnmálabrautin var ráðin og framinn skammt undan. Hann varð foringi ungra Framsóknarmanna, hafði þá þegar fengið orð fyrir að vera ræðuskörungur.

Eysteinn verður svo fjármálaráðherra í ríkisstjórn Hermanns Jónassonar 1934, sem var samstjórn Framsóknarflokks og Alþýðuflokks og fékk nafnið "Stjórn hinna vinnandi stétta". Eysteinn var þá aðeins 27 ára gamall og þá orðinn þingmaður Sunnmýlinga. Heimskreppan var þá í algleymingi og það reyndi að sjálfsögðu mikið á fjármálaráðherrann að ráða fram úr hinum erfiðu málum sem upp komu.

Ekki verður um það deilt að Eysteinn stóðst með mikilli prýði fyrsta prófið í ráðherrastóli. Á löngum stjórnmálaferli sínum, sem ekki verður rakinn hér, enda gerð góð skil í þriggja binda æviminningum, - átti Eysteinn eftir að gangast undir mörg reynslupróf, bæði í ráðherrastólum og á alþingi.

Þau próf stóðst hann þannig, að hann verður talinn í hópi mestu stjórnmálamanna landsins á árunum 1934­1974. Hann markaði djúp og heillarík spor í þjóðlíf Íslendinga á þessum árum, þegar þjóðin var að brjótast út úr fátæktinni og byggja upp velferðarríki, sem ekki á sér marga jafningja. Geta skal þess að Eysteinn tók einarða afstöðu með varnarsamningnum milli Íslands og Bandaríkjanna 1951.

Þá átti hann ásamt öðrum framsóknarmönnum þátt í því að sett var fram krafa í ríkisstjórn Ólafs Thors 1953, þar sem Eysteinn var ráðherra, að erlendir verktakar á Keflavíkurflugvelli hættu starfsemi sinni en íslenskir verktakar leystu þá af hólmi.

Eysteinn Jónsson var þó ekki aðeins stjórnmálaforingi, heldur líka forystumaður í íslensku samvinnuhreyfingunni. Störf hans þar standa mér nálægt, enda átti ég á þeim vettvangi samvinnu með honum í áratugi.

Er ég ekki frá því að samvinnuhugsjónirnar sem Eysteinn bar í brjósti á unga aldri, hafi orðið honum til styrktar í stjórnmálabaráttunni, enda var samvinnupólitík hluti af lífsviðhorfi hans. Á sama hátt hefur það verið samvinnuhreyfingunni ómetanlegur styrkur að eiga slíkan málsvara sem Eysteinn var, hvort sem var í ríkisstjórn, á alþingi eða í daglegum störfum.

Það var samvinnuhreyfingunni enn meiri nauðsyn að eiga góða málsvara, vegna þess að frá því henni tók að vaxa fiskur um hrygg, hefur hún átt mótherja sem hafa lagt sig fram um að hefta framgang samvinnustarfsins, að sjálfsögðu í því augnamiði að styrkja samkeppnisaðila.

Störf þessara aðila voru með ýmsu móti: Það snerti lagasetningar á alþingi, fyrirgreiðslur til mótherjanna í sumum ríkisstofnunum og ráðuneytum, að ógleymdum borgaryfirvöldum, sem iðulega lögðu steina í götu samvinnufélaganna, bæði Sambandsins og kaupfélagsins í Reykjavík.

Auðvitað var það hin pólitíska undiralda sem hér áður fyrr mótaði ákvarðanir í bæjarstjórn, þegar mál samvinnuhreyfingarinnar voru á dagskrá. Það var því ekki vanþörf á því, að samvinnuhreyfingin ætti málsvara á alþingi, enda voru aðal-mótherjarnir þar vel mannaðir. Víðar í stjórnkerfinu þurfti hún að eiga málsvara.

Störf Eysteins Jónssonar innan samvinnuhreyfingarinnar voru margþætt. Hann átti stóran þátt í stofnun Kaupfélags Reykjavíkur árið 1931. Var hann formaður félagsins frá upphafi uns það sameinaðist öðrum hliðstæðum félögum í Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis, KRON, sem sett var á stofn árið 1934. Í stjórn Sambandsins var hann kjörinn 1944 og sat þar óslitið til ársins 1978.

Hann gegndi stöðu varaformanns 1946 til 1975. Síðustu þrjú árin var hann stjórnarformaður Sambandsins. Hafði hann þá setið í Sambandsstjórn í 34 ár. Þá átti Eysteinn sæti í stjórn menningarsjóðs Sambandsins í mörg ár. Þekking og reynsla Eysteins Jónssonar af þjóðmálum og starfsháttum víðsvegar um landið komu að góðu liði við stjórnarstörf í Sambandinu.

Á Sambandsstjórnarfundum fór oft mikill tími í umræður um málefni kaupfélaganna. Félögin leituðu oft til Sambandsins, þegar um vandamál var að ræða í rekstrinum. Eysteinn var bæði tillögu- og úrræðagóður þegar finna þurfti lausn á vandamálum. Oftast var hann hvetjandi þegar uppbyggingarstarf var til umræðu.

Íslensk samvinnuhreyfing á Eysteini Jónssyni miklar þakkir að gjalda. Brennandi áhugi hans á málefnum samvinnufélaganna var mikill. Með löngu starfi í stjórn Sambandsins tengdi hann saman nútíð og fortíð.

Reynsla hans af störfum alþingis í áratugi, en þar sat hann á forsetastóli í nokkur ár, og af störfum í æði mörgum ríkisstjórnum, gaf honum óvenjumikla innsýn í stjórnmálin og sjálfan þjóðarbúskapinn. Það var því þýðingarmikið fyrir samvinnuhreyfinguna að eiga Eystein Jónsson sem málsvara í svo langan tíma.

Á þeim árum sem Eysteinn sat í Sambandsstjórn var samvinnuhreyfingin öflug og lagði fram mikinn skerf í þjóðarbúskapinn. Hreyfingin átti ekki lítinn þátt í því að skapa það velferðarþjóðfélag sem við nú búum við.

Fyrir nokkrum árum byrjaði hins vegar að syrta í álinn, ekki síst hjá Sambandinu. Þróun mála þar olli miklum vonbrigðum ekki síst hjá eldri forystumönnum.

Ekki má ljúka minningargrein um Eystein Jónsson, án þess að minnast á hug hans til íslenskrar náttúru. Eysteinn hefur verið "náttúrubarn", mikill útivistarmaður, mikill náttúruskoðandi. Jafnvel í mesta annríki stjórnmálanna gaf hann sér tíma til þess að ganga á vit móður náttúru. Þangað sótti hann andlega hvíld og styrk til að takast á við hin margþættu verkefni.

Útiveran, skíðaferðir og göngur á fjöll, reyndist mikil og góð heilsubót, enda bar hann aldurinn vel, ekki síst þegar tillit er tekið til þess andlega álags sem fylgdi því að vera í forystu stjórnmálanna.

Áhugi Eysteins fyrir íslenskri náttúru varð til þess að hann hóf afskipti af náttúruvernd og umhverfismálum. Þessum málum helgaði hann að hluta störf sín og sýnir það best framsýni hans í þessum málum. Hann hafði til dæmis forystu um nýja náttúruverndarlöggjöf og varð formaður náttúruverndarráðs 1972.

Því starfi gegndi hann í nokkur ár. Eysteinn hefur ferðast mikið um landið og skoðað náttúru þess. Hann þekkir þar margan krók og kima, fjöll og dali. Gönguleiðirnar í kringum Reykjavík eru kunningjar hans, þótt aldurinn hefði færst yfir var útiverunni ekki gefin grið.

Farið var á skíði, þegar færi gafst, ekki bara gönguskíðin. Haldið var upp í Bláfjöllin og farið þar í stærstu lyftunni upp á hæstu brekkurnar. Þar sáu menn Eystein renna sér í rólegu svigi af miklu öryggi niður hlíðarnar.

Eysteinn Jónsson.

Skilaði miklu ævistarfi. Hann var eindreginn félagshyggjumaður, ósérhlífinn með afbrigðum, hlýr og raungóður í smáu og stóru.

Sem kappsfullur stjórnmálamaður var hann eðlilega umdeildur en málafylgja hans var heiðarleg og laus við rætni.

Af ferli slíkra manna má margt læra.

1971
Stjórnarflokkarnir Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur snúast gegnþingsályktun Framsóknarmanna um útfærslu landhelginnar í 50 mílur. 

Viðreisnarstjórnin fellur í kosningum og við tekur vinstri stjórn undir forsæti

Ólafs Jóhannessonar.  Eitt af meginmarkmiðum hennar var að stækka landhelgina í 50 mílur.

1972
Landhelgin stækkuð í 50 mílur 1. september og ákveðið að stefna að 200 mílna fiskveiðilögsögu.

( Spila )

1975
Landhelgin færð út í 200 mílur.

( Spila )

 Lesa betur hér


Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst

Það er nú gott að framsókn sé komin í sókn. Það væri mjög slæmt fyrir Íslenska þjóð ef framsókn nær ekki góðri kosningu.

Björn Emil 


mbl.is Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Kosningamálin hafa dottið dauð niður"

Það er ekki rétt, framsókn er á fullu að kinna sín stefnumál sem eru og verða þjóðinni til sóma.

Björn Emil


mbl.is „Kosningamálin hafa dottið dauð niður"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband